SÚ KLASSÍSKA 2.0
NÝ TÚLKUN Á TÍMALAUSRI KLASSÍK
Sumt þarf ekki að enduruppfinna.
Sú klassíska 2.0 er ný útgáfa af Sjöstrand kaffivélinni og jafnframt fyrsta uppfærslan á hönnun hennar frá því hún kom fyrst á markað árið 2011. Þótt vélin haldi sínu auðkennandi yfirbragði hafa bæði innri og ytri atriði verið endurbætt til að auka afköst, endingu og notendaupplifun.
Frá upphafi var Sjöstrand kaffivélin hönnuð með langan líftíma að leiðarljósi - bæði hvað varðar efnisval og útlit. Vélin er smíðuð úr ryðfríu stáli og byggir á skandinavískum mínimalisma með innblæstri frá klassískri ítalskri espressómenningu.
Sá grunnur stendur óbreyttur.
SMÁATRIÐIÐ SEM BREYTIR ÖLLU
Breytingarnar eru yfirvegaðar og úthugsaðar, þær sjást í smáatriðunum.
Á nýju kaffivélinni hefur handfangið verið endurhannað og gert að skiptanlegum aukahlut. Vélin kemur nú með nýju stálhandfangi sem staðalbúnaði sem undirstrikar vandað efnisval og gefur vélinni enn fágaðra og glæsilegra yfirbragð. Jafnframt gefur það eigendum kost á að setja sinn persónulega svip á vélina.
Auk stálhandfangsins eru handföng úr hnotu, eik og svörtu beyki fáanleg sem aukahlutur. Hvert þeirra gefur vélinni sinn eigin karakter, frá hreinum og iðnaðarlegum línum með stáli yfir í hlýlegt og náttúrulegt yfirbragð með við.
Það tekur aðeins örfá augnablik að skipta um handfang, en áhrifin á heildarmynd vélarinnar eru umtalsverð.
Það breytir ekki aðeins útlitinu, heldur einnig því hvernig vélin fellur inn í rýmið þitt.
ENDURHÖNNUÐ FYRIR ENN BETRA KAFFI
Sú Klassíska 2.0 hefur verið endurbætt að innan til að tryggja nákvæmari hitastýringu og þrýsting, sem skilar jafnari bruggun og dregur fram bragð og tóna í kaffi með enn meiri nákvæmni.
Vélin er smíðuð úr ryðfríu stáli og hönnuð til langvarandi notkunar. Endurbættir íhlutir, þar á meðal kaffistútur úr stáli, auka bæði endingu og notagildi í daglegri notkun. Með viðgerðarvænni uppbyggingu og skiptanlegum íhlutum er kaffivélin hönnuð til að endast lengur og draga úr óþarfa sóun.
Sú klassíska 2.0 snýst ekki um að byrja upp á nýtt, hún er þróun á því sem þegar virkar vel - þar sem smáatriðin hafa verið betrumbætt til að gera daglega kaffiupplifun enn betri.