Skilmálar

GREIÐSLA

Kaupandi getur innt greiðslu af hendi með kreditkorti eða debetkorti. Kortafærslur fara í gegnum örugga greiðslugátt Salt Pay. Einnig er boðið uppá greiðslu í gegnum Netgíró, Síminn Pay og Aur appið.

AFHENDING VÖRU

Allar pantanir eru settar í útkeyrslu innan 24 tíma frá pöntun. Fyrirtækið TVG Xpress sér um dreifingu á Sjöstrand pöntunum. Þá er einnig mögulegt að sækja allar pantanir á opnunartímum í verslun okkar að Hólmaslóð 4.

Enginn sendingarkostnaður greiðist ef pöntunarvirði er yfir 10.000 kr. Fyrir pöntunarvirði undir 10.000 kr. er rukkaður sanngjarn sendingarkostnaður.

Viðskiptavinur ber sjálfur ábyrgð á að gefa upp rétt póstfang eða að vera með rétt merkta póstkassa eða póstlúgur. Tilkynningar um sendingar berast með sms og því mikilvægt að gefa upp rétt símanúmer með pöntun. Ef vara er ekki til á lager munum við hafa samband og tilkynna um áætlaðan afhendingartíma eða endurgreiða vöruna.

VÖRUSKIL

Kaupandi hefur 14 daga frá móttöku vöru til að hætta við kaupin að því tilskildu að hann hafi ekki notað vöruna, henni sé skilað í óuppteknum og upprunalegum umbúðum. Ef vara er innsigluð má ekki rjúfa innsiglið. Kvittun fyrir vörukaupum þarf að fylgja. Að ofangreindum skilyrðum uppfylltum og eftir að varan er móttekin, er gengið frá endurgreiðslu. Sendingarkostnaður er ekki endurgreiddur og kaupandi greiðir sendingargjald þegar vöru er skilað. Ef pakki er ekki sóttur á pósthús áksilur seljandi sér rétt til að halda eftir kostnaði við sendingar.

VÖRUVERÐ

Öll vöruverð eru birt með fyrirvara um prentvillur og áskilum við okkur rétt til að hætta við viðskipti hafi rangt verð verið gefið upp.
Vinsamlega athugið að vöruverð getur breyst án fyrirvara. Öll verð eru gefin upp með virðisaukaskatt.

TRÚNAÐUR

Seljandi heitir kaupanda fullum trúnaði um allar þær upplýsingar sem kaupandi gefur upp í tengslum við viðskiptin. Frekari upplýsingar um meðferð persónuupplýsinga og vafrakökur finnið þið undir síðunni – friðhelgi og vafrakökur.

ÁBYRGÐ

Seljandi veitir kaupanda 1+1 ára ábyrgð á rafmagnstækjum. Espressóvélin er í fullri ábyrgð fyrra árið og það síðara sé sýnt fram á að rétt hafi verið hugsað um vélina og farið eftir leiðbeiningum framleiðenda. Ábyrgðin er fólgin í viðgerð eða endurnýjun á hverjum þeim hluta sem áfátt kann að vera, bendi líkur til þess að um framleiðslu – eða efnisgalla sé að ræða. Ábyrgðin nær til efnis og vinnulauna vegna hugsanlegra viðgerða. Kaupandi sér um að koma vél á viðgerðarstað eða verkstæði. Kaupandi ber sjálfur kostnað af tilkynningu um bilun, svo sem símakostnað og annan slíkan.  Sé bilað tæki utan byggðalags skal það borið undir kaupanda, hvort senda skuli það til viðgerðar, eða kveðja til nærstaddan viðgerðarmann. Skuli tækið sent er minnt á nauðsyn þess að nota góðar og vel merktar umbúðir, fara að fyrirmælum leiðarvísis, þegar hann kveður á um sérstakan flutningsbúnað og möguleikana á að tryggja tækið gegn flutningsskemmdum. Ennfremur skal fylgja lýsing á bilun.

Ábyrgðin nær ekki til bilana sem framleiðanda eða seljanda verður ekki kennt um, svo sem bilana sem stafa af flutningi, rangri meðferð eða misnotkun, slælegu viðhaldi, slysni eða óhöppum, náttúruhamförum, truflunum á rafkerfi hússins eða veitunnar, o.s.frv.

Ábyrgðin nær heldur ekki til óbeins tjóns vegna hugsanlegra galla á tækinu, en kaupanda er bent á möguleikana á að tryggja sig gegn slíku hjá tryggingafélögum.

Skilyrði fyrir ábyrgðinni eru almenns eðlis, svo sem að galli sé tilkynntur strax og hans kann að verða vart og að ekki hafi neitt verið átt við tækið af aðilum óviðkomandi seljanda, nema í samráði við hann.

Ábyrgðarskirteini skal fylla út undir flipanum “Ábyrgðarskráning” neðst á síðu.

ENDURVINNSLA

Sjöstrand er annt um endurvinnslu á öllum sínum vörum. Sem innflytjandi á raftækjum borgar Sjöstrand á Íslandi svokallað úrvinnslugjald sem nær yfir kostnað við endurvinnslu á vélum og umbúðum.

Mikilvægt er að benda á að raftækjaúrgangi sé safnað sérstakleg. Sjöstrand á Íslandi tekur á móti vélum og öðrum litlum raftækjum til endurvinnslu. Þá er bent á söfnunarstöðvar sveitafélaga sem taka gjaldfrálst á móti raf- og rafeindatækjaúrgangi.

VARNARÞING

Ákvæði og skilmála þessa ber að túlka í samræmi við íslensk lög. Komi upp ágreiningur eða telji einhver að hann eigi kröfu á hendur Sjöstrand á grundvelli ákvæða og skilmála, verður slíkum ágreiningi eða kröfu vísað til meðferðar hjá íslenskum dómstólum.

ANNAÐ

Með því að skrá þig á póstlista Sjöstrand samþykkir þú að fá sendar upplýsingar um nýjar vörur og tilboð. Netföngin eru trúnaðarupplýsingar og eru undir engum kringumstæðum afhent þriðja aðila. Óski viðskiptavinur eftir að vera tekinn af póstlista skal fylgja leiðbeiningunum neðst í tölvupóst sendingum eða senda tölvupóst sjostrand@sjostrand.is

Sjöstrand áskilur sér rétt til að breyta skilmálum þessum hvenær sem er.

ÁSKRIFTARSKILMÁLAR

BINDITÍMI ÁSKRIFTAR

Enginn binditími er á kaffiáskrift, þú getur stöðvað áskrift hvenær sem er.

LJÚKA EÐA STÖÐVA ÁSKRIFT

Til að stöðva áskrift skráir þú þig inn á “Minn Reikningur” á vefsíðunni og stöðvar áskrift, eða sendir okkur tölvupóst á netfangið sjostrand@sjostrand.is og biður um stöðvun á áskrift. Áskrift er þá stöðvuð um hæl.

GREIÐSLUR

Með því að skrá kaffiáskrift samþykkir þú að sama greiðsla verði innt af hendi með reglulegu millibili sem þú velur, fyrir þeim kaffipakka sem þú hefur valið.

Ef þú kýst að ljúka áskrift en búið er að gjaldfæra kortið þitt er útistandandi kaffisending alltaf send til þín og áskrift telst þá lokið. Kortið er ekki rukkað ef áskrift er hætt áður en gjaldfærsla á sér stað.

Með því að skrá þig á póstlista Sjöstrand samþykkir þú að fá sendar upplýsingar um nýjar vörur og tilboð. Netföngin eru trúnaðarupplýsingar og eru undir engum kringumstæðum afhent þriðja aðila. Óski viðskiptavinur eftir að vera tekinn af póstlista skal fylgja leiðbeiningunum neðst í tölvupóst sendingum eða senda tölvupóst sjostrand@sjostrand.is

ANNAÐ

Í kaffiáskrift gilda okkar almennu skilmálar að viðbættum Áskriftarskilmálum.


Uppfært: 10.05.2023

FYRIRTÆKJAUPPLÝSINGAR
Halba ehf. / Sjöstrand á Íslandi
Kt. 6607120620
Hólmaslóð 4
102 Reykjavík