Heitt á könnunni síðan 2013
Sjöstrand var stofnað í Stokkhólmi og hefur haft það að markmiði að skapa fallegasta kaffimerki í heimi. Vörur eru þróaðar af skandinavískum hönnuðum með sjálfbærni, gæði og gott bragð að leiðarljósi. Innblásturinn kemur frá klassísku ítölsku espressó vélunum sem, í bland við nýsköpun, skapar tímalausa hönnun fyrir heimilið. Eldhúsið er hjarta heimilisins og okkar markmið er að gera hinn hversdagslega kaffitíma að hinni fullkomnu stund, fyrir þig.
SJÖSTRAND Á ÍSLANDI - LÍTIÐ FJÖLSKYLDUFYRIRTÆKI
Sjöstrand kom til Íslands fyrir jólin árið 2017 og eftir gríðarlega góðar viðtökur frá fyrsta degi var ekki aftur snúið. Fyrirtækið er rekið af tveimur ungum kjarnafjölskyldum sem deila með sér verkum – félagarnir, Gunnar Steinn og Viktor Bjarki, sjá um daglegan rekstur og eiginkonurnar, Álfrún og Elísabet, taka að sér ýmis verkefni samhliða sinni vinnu.
Við kynntumst sænska kaffiframleiðandanum í heimalandinu Svíþjóð, enda mikið áhugafólk um kaffi og kaffidrykkju. Verandi líka áhugafólk um umhverfisvernd þótti okkur þetta sameina það tvennt einstaklega vel. Einfaldleikinn heillaði, bæði í útliti og virkni, sem og einstaklega bragðgott lífrænt kaffi.
Ef það vakna einhverjar spurningar eða þið viljið ræða málin yfir einum bolla – ekki hika við að hafa samband.