hero image

Eitt virtasta hótel Skandinavíu, Grand hótel í Stokkhólmi, býður gestum upp á Sjöstrand.

Grand hótel í Stokkhólmi hækkaði nýlega viðmiðin þegar kemur að gestrisni og móttöku gesta sinna með því að setja Sjöstrand kaffivélar inn á hvert herbergi. Það gefur gestum tækifæri til að vakna upp við ilmandi braðgóðan bolla á meðan á dvöl þeirra stendur. 

Þessi viðbót í þjónustu lúxushótelsins staðfestir markmið þeirra að veita gestum sínum aðeins það besta. Með því að hafa vél í hverju herbergi geta gestir notið bragðgóðs bolla á hvaða tíma dags sem er án þess að þurfa að yfirgefa herbergið sitt, og þetta er auðvitað ekki bara kaffivél. Sjöstrand vélin hellir upp á hinn fullkomna bolla ásamt því að klassísk hönnun vélarinnar passar inn í hvaða rými sem er.

split-banner image
split-banner image

Auk þess að vera vel staðsett og með hátt þjónustustig þá er Grand Hótel einnig þekkt fyrir markmið sín sem snúa að sjálfbærni og umhverfisvernd. Hótelið hefur sett í ferli grænar leiðir í starfsemi sinni, eins og að vera með endurnýjanlega orkugjafa, vatnsverndarátak og fleira sem gerir samstarfið við Sjöstrand náttúrulega þróun.

Það er aukin krafa meðal hótelgesta í dag að fá hágæða kaffiupplifun með í kaupunum á hótelnótt. Góður kaffibolli í morgunsárið getur skipt sköpum fyrir heildarupplifun gesta, sem stjórnendum og eigendur gististaða í miklu samskeppnisumhverfi hafa kveikt á.

Á Íslandi má finna Sjöstrand kaffi á hótelum á borð við Hótel Geysi, Ion hótel, Exeter hótel, Hótel Holt og fleiri. Sjöstrand býður upp á góða þjónustu með kaffivélunum. Kynntu þér fyrirtækjavélar og fáðu að prófa hér. 

Quick shop
Quick shop
split-banner image
split-banner image