Hreinsihylki (8 stk)

2,490 kr
Frítt Dropp á pöntun yfir 10.000 kr.

Haltu kaffivélinni þinni í toppstandi með þessum sérhönnuðu hreinsihylkjum sem fjarlægja á áhrifaríkan hátt kaffileifar, kaffikorg og beisk efni sem safnast geta upp í vélinni.

Hylkin passa í allar kaffivélar sem nota Nespresso® Original hylki. Regluleg hreinsun hjálpar til við að koma í veg fyrir stíflur og mögulegar skemmdir á vélinni, auk þess sem hún stuðlar að betra bragði og fallegri crema á kaffinu.

Einn pakki inniheldur 8 hreinsihylki og dugar því í 8 hreinsanir. Við mælum með að hreinsa kaffivélina á 2–4 vikna fresti eða eftir um 50 kaffibolla.

Notkunarleiðbeiningar

  1. Settu hreinsihylkið í vélina, settu sveifina niður og ýttu á hnappinn fyrir stóran bolla.

  2. Bíddu í eina mínútu og ýttu síðan aftur á hnappinn.

  3. Fjarlægðu hreinsihylkið og settu sveifina aftur niður án þess að setja nýtt hylki í.

  4. Ýttu tvisvar á hnappinn fyrir stóran bolla til að skola vélina með vatni.