Ker x Sjöstrand bolli
01 Tegund
Í samvinnu við keramik listakonuna Guðbjörgu Káradóttur hjá KER hönnuðum við hinn fullkomna Sjöstrand bolla, sem hentar bæði fyrir lungo og espresso. Guðbjörg handrenndi alla bollana og því er hver og einn einstakur og með eigin karakter. Bollarnir eru til í hvítu og svörtu, rúma um 150 ml og staflast auðveldlega hver á annan.
Við bjóðum uppá fría sendingu á Droppstað á pöntunum yfir 10.000 kr.
Fyrir pantanir undir 10.000 kr. kostar 590 kr. að fá Dropp og við rukkum alltaf 990 kr. fyrir heimsendingu. Þá er alltaf mögulegt að sækja pantanir í verslun okkar í Borgartún 24b á opnunartíma (09-16 alla virka daga).
Pantanir eru sendar frá okkur innan 24 klst. Afhendingartími er misjafn eftir búsetu, venjulega samdægurs á höfuðborgarsvæði ef pöntun berst fyrir hádegi. Lestu meira um sendingar HÉR.