Engifer Lime Boost
01 Tegund
Njóttu kraftmikillar blöndu af 80% engifer og 20% lime í þægilegu, koffínlausu hylki sem gefur gott jafnvægi af hlýju og frískandi keim. Engifer er þekkt fyrir sína góðu kosti; bólgueyðandi, auðveldar meltingu og styrkir ónæmiskerfið sem gerir það að náttúrulegri viðbót við daglega rútínu.
Við mælum með engifer boost sem espresso skoti.
_
Hylkin eru niðurbrjótanleg, gerð úr náttúrulegri hliðarafurð baunabrennsluferlisins sem myndi venjulega fara til spillis, sem gerir þau að vistvænu vali. Hylkin má flokka með lífrænum úrgangi.
Til að fá sem besta bragðupplifun er mikilvægt að skola kaffivélina bæði fyrir og eftir notkun á boost hylki. Það er gert með því að leyfa einum vatnsbolla að renna í gegnum kaffivélina.
Við bjóðum uppá fría sendingu á Droppstað á pöntunum yfir 10.000 kr.
Fyrir pantanir undir 10.000 kr. kostar 590 kr. að fá Dropp og við rukkum alltaf 990 kr. fyrir heimsendingu. Þá er alltaf mögulegt að sækja pantanir í verslun okkar í Borgartún 24b á opnunartíma (09-16 alla virka daga).
Pantanir eru sendar frá okkur innan 24 klst. Afhendingartími er misjafn eftir búsetu, venjulega samdægurs á höfuðborgarsvæði ef pöntun berst fyrir hádegi. Lestu meira um sendingar HÉR.